Ég var að koma af tónleikum, nánar sagt bestu og flottustu tónleikum sem haldnir hafa verið í Íslandi. Zappa plays Zappa var yfirskriftin og orð að sönnu því synir Frank Zappa, Dweezil Zappa og Ahmet Zappa stóðu að þessu. Reyndar var Ahmet ekki uppi á sviði en hann var í einhverju baktjaldamakki.
Auk þeirra voru góðir gestir og aðrir tónlistarsnillingar. Fyrstan má nefna Napoleon Murphy Brock sem spilaði á Saxafón, þverflautu og söng aðalrödd. Svo var trommusnillingurinn Terry Bozzio sem sýndi gríðartakta í ''mindblowing'' trommusólóum og reyndar líka annar trommari sem var alls ekki síðri trommari. Síðast en ljósárum frá því að vera síst má telja Steve Vai, einn mesta gítarsnilling sögunnar. Gítarsólóin hjá drengnum voru ekki mannleg, vá! þessir þrír voru allir að spila með Frank Zappa á sínum tíma.
Dweezil, sonur Zappa spilaði lead guitar svo ég sletti aðeins, meirihluta tónleikanna sem stóðu í rúma 3 tíma. Han flengdi einnig fram gríðarlegum tónaflaumi úr sínum gítar og mátti greina tár á hvammi fólks þegar mest lét. þar fyrir utan voru nokkrir aðrir tónlistarmenn. Einn rithma gítar, einn bassi sem var rosalega klár, einn ásláttarleikari, með xylophon, bongotrommur, kúabjöllur, hristur og fleira þess háttar. Ein kona sem spilaði á hljómborð, bak- og aðalrödd og saxófón og hún var einnig úr þessum heimi hvað varðar sóló úr hljómkviðu sinni. Að lokum var einn sem spilaði á hljómborð, trompet og ýmis rafhljóðfæri, t.d. (synthesizer?).
Þeir spiluðu samfellt í 2 og hálfan tíma, lög frá ýmsum tímabilum í ferli Frank Zappa. Þá sögðust þeir vera farnir en nei lýðurinn vildi meira svo þeir komu aftur og spiluðu eitt aukalag. ''Bara eitt aukalag'' kunna margir að segja en verða gabandi þegar ég segi þeim að það lag stóð í tæpar 40 mín. já, 40 mín! Það innihélt allt, sóló frá nánast öllum í hljómsveitinni, fagran söng með miklu harmony milli saxafón/ karlsöngvara og saxafón/ kvennsöngvara. Svo var gríðarlegt trommusóló þar sem trommararnir tveir skiptust á að tromma heilabörkinn í tvennt og að sjálfsögðu fabio sjálfur, Steve Vai með besta gítarsóló sem ég hef heyrt í mjög langan tíma, það var lýtalaust.
Rúmir 3 tímar af eintómri hamingju og gleði, nú sit ég hér í sæluvímu með brosið frosið á varir mínar og hlusta á óminn að hljómleikunum sem festist í kollinn minn, nú einungis sem pirrandi ískur og ótti um varanlegan heyrnarskaða. Ég er glaður, það fyndna er að það stóð ekkert til að fara á þessa tónleika, reyndar vissi ég ekki af þeim fyrr en í fyrradag, svo fór ég að lesa mig til og í dag tókst mér loks að sannfæra pabba um að bjóða mér. Hann sér ekki eftir því núna því hann er álíka glaður og er skítsama um 12600 krónurnar sem þetta kostaði hann.
Fyrir þá sem þekkja ekki tónlist Frank Zappa þá mæli ég eindregið með honum, snillingur.
Á örðum nótum, ég byrjaði í vinnunni minni í dag, ég vinn nú hjá Arnarverk. þar er ég handlangari, það þýðir samt ekki að mig langar í hendur, neeiii ég er einskonar aðstoðarmaður ó byggingarsvæði. Alveg ágætt, ég geri voða lítið, bíð bara mest og þarf einstaka sinnum að moka eða eitthvað þannig.Og auk þess ágætlega borgað, ég segi ekki nákvæma tölu en þetta er töluvert yfir unglingavinnu kaupinu, fliss fliss.
Á enn öðrum nótum, ég hef formlega lokið grunnskóla. Ég tel mig hafa staðið mig ágætlega en ég ætla ekkert að útlista námsárangur minn frekar hér þar sem þið sem lesið þetta vitið allt um það, enda sáuð þig mig uppi á sviði þegar ég tók við verðlaunum.
Á síðustu nótunum í dag, söngleikurinn er loksins tilbúinn, á diskinum er bara söngleikurinn í heild sinni, eingin heimildamynd samt, vegna tæknilegra örðugleika, því miður. En söngleikurinn er þarna, það er algjör óðarfi að hrópa húrra yfir gæðunum en þau trufla mann voða lítið, það sést allt og hljóðið er bara fínt, reynið bara að horfa á litlu sjónvarpi, þá líta gæðin betur út. Þeta er allt mjög professional gert, hulstur og prentuð mynd á diskunum og DVD menu og allt í góðu, allt þetta fyrir aðeins 1200 kr, sem þið hafið alveg efni á, kommon, bolurin kostaði 1500 kr og það var bara bolur. En þið sjáið samt eftir því ef þið kaupið þetta ekki þannig að sendið mér nafn og e-mail ef þið viljið kaupa, e-mailið mitt er leppaludinn@gmail.com. Þá fáið þið sent e-mail þegar þið þurfið að sækja diskinn upp á skrifstofu skólans, það verðu fyrir 20 júní.
Kaupið nú diskinn og verið góð.
Nóg að sinni, Sleggjan
